13.03.2010 11:55:33 / siggitor
»
15.02.2010 21:11:14 / siggitor
Mustang fastback 1966. Tjónaðist aðeins þegar hann vafði hann utan um staur
»
02.01.2010 12:43:14 / siggitor
InDefnce afhentir forseta undirskrift rúmlega 56 þúsund íslendinga sem skora á forsetan að synja nýjum Icesave lögum staðfestingar
»
10.12.2009 22:00:11 / siggitor
Eitthvað segir mér að ég muni eignast svona bíl á næstunni

300 hp


»
28.05.2009 15:43:56 / siggitor
»
04.04.2009 11:18:22 / siggitor

Já þá er komið að því, tíu ár saman og við rétt að byrja.
Mér finnst eins og við höfum kynnst í gær. Ég ungur og sætur með love tattoo, en nú bara með tattoo. Á þessum árum höfum
við gert margt og upplifað mikið. Við höfum búið til eitt stykki barn, byggt
okkur hús eftir að hafa átt heima í einum skúr, eyjaholti, upp on a base og
ekki má gleyma Florida. Við höfum ferðast um heiminn eins og flestir hafa svo
gaman af. Það byrjaði allt saman þegar við vorum búin að vera saman í næstum
þrjú ár. Fyrsta ferðin okkar var til Portugals. Þetta var fyrsta ferðin hennar
Helgu og má með sanni segja að upp frá þessari ferð var Helga komin með
bakteríuna. Við höfum síðan þá ferðast til Lanzarote, Danmerkur, og ótal ferðir
til Bandaríkjana.
Þegar við byrjuðum
saman var ég aðeins tvítugur og hún 16 ára að verða 17. Við trúlofuðum okkur
tveimur árum síðar og gengum svo í það heilaga sex árum eftir það. Það skal ekki undra að við
erum ótrúlega samrýmd og getum ekki án hvort annars verið enda búin að vera
saman í allan þennan tíma. Til hamingju elskan mín. Ég vona að þetta sé aðeins
byrjunin á langri og skemmtilegri ferð okkar saman.
Ástarkveðja, Siggi.

»
16.03.2009 21:49:09 / siggitor
Hér kemur myndin
»
14.03.2009 11:55:24 / siggitor
»
14.03.2009 11:51:14 / siggitor
»
07.03.2009 11:41:57 / siggitor

Sumarið styttist óðum með öllum sínum kostum. Aðgerðarleysi
síðustu mánaða sýnir sumarið í enn meiri hyllingum og mætti segja að mikil pressa sé komin á
umrædda árstíð.
Af þeim sökum hafa margir okkar notað veturinn til undirbúnings,
undirbúnings til að nýta hverja mínutu af sumrinu. Ég er viss um að margir eru
í þeim sporunum í dag. Í stað þess að sitja hver í sínu hornu á þessum síðustu
og verstu er fólk farið að finna upp á allskyns vitleysu til að drepa tímann og
nýta hann í einhvað uppbyggilegt. Það höfum við félagarnir a.m.k nýlega farið
að gera. Það sem sameinar okkur er ástríða á mótorhjólum. Við ætlum að verða
tibúnir fyrir sumarið og ekkert kjaftæði og sumarið verður nýtt til hins
ýtrasta. Þannig getum við sagt þegar vetrarkonungurinn ber að garði í haust að
sumarið fór ekki í neina vitleysu.
Það sem framundan er hjá okkur eru fundir og húsnæðisleit
fyrir klúbbinn. Strákarnir stofnuðu klúbb fyrir tveimur árum sem ber heitið
víkingarnir. Nú er ég harð ákveðin að taka þátt í þessu af fullum krafti og
byrja herlegheitin í kvöld með fundi. Þar verður ný stjórn sett á laggirnar. Ekki
er ólíklegt að ferð sumarsins verði rædd. Búið er að ákveða að Vestfirðir verði
fyrir valinu þannig að umræðan í kringum þá ferð verður vafalítið gerð skil þar
sem eftirvænting er mikil.

> >
»
05.03.2009 19:51:12 / siggitor
»
01.03.2009 20:05:09 / siggitor
»
01.03.2009 11:34:25 / siggitor

Þetta er rotta. Við erum að tala um það að rotturnar í kína eru orðnar stærri en kettir. Bara skottið á þessari rottu mældist 30 sentimetrar sem er ótruleg tilviljun því það er nákvæmlega jafn stórt og minn ógurlegi.
»
12.02.2009 09:37:41 / siggitor

Já, nú er ég ánægður og get virkilega farið að hlakka til sumarsins því ég náði takmarkinu og gott betur en það. Komin á splúnkunýtt hjól.
»
08.02.2009 13:39:16 / siggitor

Flottasti muscle car sem ég hef séð. Er til sölu á live2cruize.com á 2.2 milljón!
»
Síður:
1 2 3